Forseti Íslands sendir samúðarkveðjur

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag sent forseta
Kína Hu Jintao samúðarkveðju vegna hinna hræðilegu hörmunga sem
orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Kína.

Í tilkynningu frá forsetaembættinu kemur fram að atburðirnir hafi skapað öldu samúðar og stuðnings um allan heim. Hugur okkar sé með fjölskyldum og vinum þeirra sem létu lífið eða slösuðust alvarlega. Þess sé óskandi að komandi ár færi þeim á ný styrk og von.

Forseti Íslands vék einnig í kveðjunni að samræðum sínum við Hu Jintao í Shanghai á liðnu ári og í Peking árið 2005 þar sem hann vakti athygli á rannsóknum Íslendinga á sviði jarðskjálfta og hinu öfluga viðvörunarkerfi sem íslenskir vísindamenn og sérfræðingar hefðu þróað. Sú þekking væri framlag Íslendinga til annarra þjóða sem byggju við slíkar hættur.

„Íslenska þjóðin hefði langa reynslu af jarðskjálftum og því hefðum við djúpan skilning á þeim hrikalegu afleiðingum sem þeir gætu haft í för með sér. Samúðarhugur Íslendinga væri með kínversku þjóðinni," samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert