Sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Maldíveyjum

Dr. Gunnar Pálsson, sendiherra, afhenti Maumoon Abdul Gayoom, forseta Maldíveyja, trúnaðarbréf sitt þann 8. maí sem sendiherra Íslands gagnvart Maldíveyjum með aðsetur í Nýju Delí.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytingu segir að í tengslum við athöfnina, sem fram fór í Malé, var m.a. rætt um tvíhliða samskipti ríkjanna, þ.á m. í loftlags- og sjávarútvegsmálum og framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Þá kemur fram að sendiherra átti fundi með utanríkisráðherra Maldíveyja, Abdulla Shahid, varautanríkisráðherra, Dunya Maumoon og umhverfis- og orkumálaráðherra, Ahmed Abdullah, auk háttsettra embættismanna í utanríkisráðuneytinu.  Á fundunum var m.a. fjallað um þær afgerandi breytingar sem nú eiga sér stað í stjórnmálalífi Maldíveyja, en fyrstu lýðfrjálsu kosningarnar í landinu standa fyrir dyrum með haustinu.

Á meðan á heimsókninni stóð notaði sendiherrann tækifærið til að afhenda nýjum kjörræðismanni Íslands á Maldíveyjum, Ibrahim Mohamed Didi, skipunarbréf íslenskra stjórnvalda.  Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Maldíveyjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert