Þrír ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurnesjum í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Einn á Grindavíkurvegi, sem mældist á 115 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst. Annar á 90 km/klst. á Reykjanesbrautinni, þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst. og sá þriðji mældist á 126 km/klst. á Reykjanesbrautinni þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.
Þá var einn ökumaður kærður fyrir að aka yfir á rauðu ljósi við gangbraut á Njarðarbraut í dag.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir það að nota ekki öryggisbelti við akstur í Reykjanesbæ í dag.