Félag Litháa á Íslandi verður stofnað á laugardaginn. Í tilkynningu segir, að markmið félagsins verði fyrst og fremst að kynna menningu Litháa, vera talsmenn Litháa á Íslandi og bæta ímynd þeirra hérlendis.
Félagið verður vettvangur menningarviðburða, félagsstarfs meðal Litháa og mun leita eftir samstarfi við aðila víða í samfélaginu.
Stofnfundurinn verður í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, og hefst klukkan 19.