Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í dag Ólafi Elíassyni, listamanni, íslensku fálkaorðuna á Bessastöðum en Ólafur er staddur hér á landi í tengslum við setningu Listahátíðar. Listamaðurinn hlaut orðuna nú á nýársdag fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar.