Sviptingar á Akranesi

Karen Jónsdóttir
Karen Jónsdóttir

Miklar sviptingar urðu í bæjarpólitíkinni í Akranesbæ í gær, en þá gekk Karen Jónsdóttir, fulltrúi lista Frjálslyndra og óháðra í bæjarstjórn, til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Einnig gekk Gísli S. Einarsson, ráðinn bæjarstjóri, í Sjálfstæðisflokkinn. Gísli hefur verið óflokksbundinn um nokkurt skeið, en var áður í Samfylkingu

Með Karen innanborðs hefur Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í bæjarstjórn eða fimm fulltrúa af níu. Mun áfram verða starfað samkvæmt málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og F-lista.

Ákvörðun Karenar og Gísla virðist aðallega koma sem viðbragð við ummælum Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, varafulltrúa F-lista, í bæjarstjórn en hann er jafnframt formaður félagsmálaráðs bæjarins og menningar- og safnanefndar. Hefur verið tekin ákvörðun um að kjósa aftur í nefndir bæjarins og þykir víst að Magnúsi Þór verði skipt út.

„Mér var stillt upp við vegg á síðasta bæjarmálafundi, og þetta er í raun niðurstaðan af því,“ segir Karen um ákvörðun sína, en vill ekki greina nánar frá atburðum fundarins. Hún segir þó að það sem fyllt hafi mælinn hafi verið afstaða Magnúsar Þórs til ákvörðunar Akraneskaupstaðar um að taka við hópi 30-60 palestínskra flóttamanna en hann hefur gagnrýnt þá ákvörðun harðlega.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert