Þinglýstum fasteignakaupsamningum heldur áfram að fækka og í vikunni, sem er að líða, var 45 slíkum samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, 3 á Akureyri og 4 á Árborgarsvæðinu. Vikuna á undan var 62 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæði, 12 á Akureyri og 8 á Suðurlandi.
Heildarveltan á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæði var 1411 milljónir króna í vikunni, samanborið við 1757 milljónir vikuna á undan. Meðalupphæð á samning 31,4 milljónir króna, ívið hærri en vikuna á undan meðal meðalupphæð var 28,3 milljónir.