Frekar þungbúið veður í dag

Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt á landinu í dag víða 3-8 metrum á sekúndu. Gert er ráð fyrir súld eða dálítilli rigningu með köflum á sunnanverðu landinu, og skýjuðu norðaustan- og austanlands. Úrkomulítið norðvestantil, en dálítil væta eftir hádegi á morgun. Hiti verður 3 til 10 stig en hætt er við næturfrosti norðaustanlands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert