Áskrifendum Stöðvar 2 og fjölskyldum þeirra var boðið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Reykjavík í dag. Segir Stöð 2 að ríflega 16 þúsund manns hafi verið í garðinum þegar hæst stóð, í mildu og góðu veðri.
Boðið var uppá skemmtiatriði fyrir börn á öllum aldri og ókeypis var í leiktæki í garðinum. Fjölskyldudagur Stöðvar 2 er fyrir alla þá áskrifendur sem eru meðlimir í Stöð 2 Vild.