Tvö umferðaróhöpp urðu á Grafningsvegi meðfram Þingvallavatni í dag. Fyrra óhappið varð um klukkan 13 í dag og keyrði bíll utan í vegrið og stórskemmdist. Hann var fjarlægður með kranabíl. Einn ökumaður var í bílnum og slapp hann ómeiddur.
Bílvelta varð svo á svipuðum slóðum um klukkan 16.30. Í bílnum voru ökumaður og 2 börn og ekki er vitað um ástand þeirra að svo stöddu. Sjúkrabíll er á staðnum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.