Mikill erill var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt, m.a. vegna ölvunar og slagsmála. Ráðist var á dyravörð inni á skemmtistað og á mann á götu í Þverholti. Fjöldi fólks varð vitni að því er nokkrir menn stukku út úr bíl og réðist á manninn, sem m.a var barinn í höfuðið með barefli.