Lifrarbólgusmit eykst umtalsvert

Óvenju margir greindust með lifrarbólgu B hér á landi á síðasta ári, eða 48 manns. Um helmingur þeirra var innflytjendur og vitað var um átta
sem höfðu sprautað sig með fíkniefnum.  Þá greindust 95 manns með lifrarbólgu  C, sem er umtalsverð aukning miðað við árin á undan.

Síðast gekk yfir faraldur meðal fíkniefnaneytenda á árunum 1989–1991. Í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins segir, að mikilvægt sé að bjóða fíkniefnaneytendum, sem ekki hafa smitast af lifrarbólgu B, bólusetningu gegn sjúkdómnum til að koma í veg fyrir nýjan faraldur í þessum hópi. Hlutur innflytjenda meðal þeirra, sem greinast með lifrarbólgu B, sé enn nokkuð hár.

Lifrarbólga C er langalgengasta lifrarbólgan hér á landi. Meginþorri þeirra sem smitast eru fíkniefnaneytendur sem sprauta sig. Á árinu 2007 greindust 95 manns með lifrarbólgu  C, sem er umtalsverð aukning miðað við árin á undan. Í Farsóttafréttum segir, að þessi aukning sé vísbending um hugsanlega aukningu á misnotkun fíkniefna með sprautum og nálum og ógætilega notkun þeirra þar sem skipst er á menguðum áhöldum.

Lifrarbólga B meðal innflytjanda til landsins er viðvarandi lifrarbólga sem stafar yfirleitt af smiti frá móður til barns í þeim löndum þar sem sjúkdómurinn er landlægur. Hins vegar má ætla að lifrarbólga C meðal innflytjenda eigi sér svipaða skýringu og hjá Íslendingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert