Þessu angans greyi var borið í gærmorgun á bænum Árholti á Tjörnesi þar sem Jón Gunnarsson er bóndi.
Eins og sést var lambið aðeins með eitt auga. Það vildi ganga en virtist ekki greina hreyfingar í kringum sig og því óvíst hvort það gat nokkuð séð með auganu. Þá var einungis skinn yfir þar sem nasirnar eiga að vera. Neðri kjálki og tunga voru í lagi en lambið gat ekki sogið og því varð að lóga því.
Var lambið einlembingur en ekki mjög stórt. Fékk ærin annað heilbrigt lamb hjá kind sem var að bera rétt hjá henni.