Ísland er friðsælasta ríki heims, samkvæmt Global Peace Index listanum sem birtur var í dag. Írak er hins vegar stríðhrjáðasta land heimsins. Danmörk og Noregur fylgja fast á eftir Íslandi á listanum en Afganistan, Sómalía og Ísrael eru meðal þeirra stríðhrjáðustu.
Ísland var ekki á listanum á síðasta ári en þá var 121 ríki á honum. Nú eru þau 140 talsins. Listinn er meðal annars reiknaður út með tilliti til glæpatíðni og hernaðarátaka.
Tíu efstu
1. Ísland
2. Danmörk
3. Noregur
4. Nýja Sjáland
5. Japan
6. Írland
7. Portúgal
8. Finnland
9. Lúxemborg
10. Austurríki