Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að skemmdarverk hafi verið unnin á bíl á Lækjartorgi fyrir hádegi.
Að sögn lögreglu voru sjónarvottar að atvikinu sem greindu frá því að maður hafi stokkið út úr bíl, brotið rúðu í bílnum, og keyrt svo í burtu. Að sögn lögreglu er mannsins nú leitað.