Ökumenn til fyrirmyndar á Hofsvallagötu

Brot tveggja ökumanna voru mynduð á Hofsvallagötu í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hofsvallagötu í suðurátt, að Melhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því voru nær allir ökumenn til fyrirmyndar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Bílar þessara tveggja sem óku of hratt eða yfir afskiptahraða mældust á 59 og 66  km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert