Eldur kom upp í ruslatunnu fyrir utan brottför Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar um sex leytið í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum hafði flugfarþegi hent logandi vindlingi í ruslatunnu og við það hafi komið upp eldur.
Lögreglumenn í eftirliti í flugstöðinni slökktu eldinn með slökkvitæki úr lögreglubifreið. Skemmdir voru óverulegar.