104 ára í dag

Torfhildur ásamt tveimur barnabörnum sínum.
Torfhildur ásamt tveimur barnabörnum sínum. mynd/bb.is

Torfhildur Torfadóttir, íbúi á Hlíf íbúðum aldraðra á Ísafirði, er 104 ára í dag. Torfhildur er elst Vestfirðinga og næst elsti Íslendingurinn.

Torfhildur er fædd í Asparvík á Ströndum og var yngst átta barna Önnu Bjarnveigar Bjarnadóttur og Torfa Björnssonar. Að auki átti Torfhildur þrjú hálfsystkini. Nokkur systkina Torfhildar náðu háum aldri en bróðir hennar Ásgeir varð 100 ára, Eymundur 96 ára og Guðbjörg 91 árs. Torfhildur ólst upp í Selárdal í Steingrímsfirði en að lokinni fermingu fór hún í vinnumennsku í Króksfirði og Reykhólasveit.

Til Ísafjarðar hélt hún til starfa á klæðskeraverkstæði Einars og Kristjáns. Hún starfaði þar við saumaskap uns hún giftist og stofnaði heimili með Einari Jóelssyni sjómanni og bjuggu þau allan sinn búskap á Ísafirði þar til Einar lést árið 1981. Þau eignuðust fimm börn og eru þrjú þeirra á lífi  en að auki ólu þau upp dótturdóttur sína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert