Að veiðum skammt frá landi

Smáey VE.
Smáey VE.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Líf, stóð í morgun togskipið Smáey VE að meintum ólöglegum veiðum út á Lónsbugt við Hvítinga.  Skipið er talið hafa verið að veiðum innan við 3 sjómílur frá landi.

Skipinu var vísað til Hafnar í Hornafirði þar sem málið verður rannsakað frekar af lögreglunni á Höfn.  Málið er á forræði lögreglustjórans á Eskifirði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert