Miðstjórn Frjálslynda flokksins samþykkti á fundi í gærkvöldi ályktun, þar sem lýst er yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson, varaformann flokksins, í störfum hans sem sveitarstjórnarmaður á Akranesi.
„Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefur farið þess á leit við Akranesbæ að sveitarfélagið taki á móti allt að 60 flóttamönnum frá Írak á næstu tveim árum. Sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn hefur Magnús sinnt skyldum sínum með því að benda réttilega á slælegan undirbúning málsins af hálfu ríkisstjórnarinnar. Jafnframt hefur hann spurt eðlilegra spurninga sem hljóta að vakna þegar jafn stórt og viðamikið verkefni kemur til umræðu og kallað eftir svörum. Miðstjórn Frjálslynda flokksins harmar að viðbrögð Sjálfstæðisflokksins vegna þessa hafi orðið með þeim hætti að flokkurinn kaus að binda enda á meirihluta samstarf við Frjálslynda og óháða á Akranesi," segir í ályktun miðstjórnarinnar.