Gott er að nýta sér krafta stórvirkra vinnuvéla við verkin, eins og þessi maður sem var að þökuleggja í Ártúnsbrekku í gær. Þar sem merki Reykjavíkurborgar gladdi áður augað mun í framtíðinni verða grasi gróin grund. Þó er ekki ástæða til að sýta hvarf merkisins því til stendur að færa það neðar í brekkuna þar sem talið er að það muni blasa betur við þeim sem leið eiga um.