Icelandair hefur ákveðið að gera breytingar á vetraráætlun næsta vetrar og draga úr framboði til þess að mæta auknum kostnaði vegna eldsneytisverðhækkana. Helstu breytingar eru þær að vetrarhlé verður lengt í flugi til og frá Minneapolis og heilsársflugi til Toronto og Berlín er frestað.
Flug til og frá Toronto í Kanada hófst í vor og Icelandair segir, að það muni halda áfram vorið 2009 eftir vetrarhlé. Hlé var gert á flugi til Minneapolis á síðasta vetri og verður það hlé lengt veturinn 2008-2009 og stendur frá októberlokum fram í mars. Á síðasta vetri var ekki flogið til Berlínar og áformum um heilsársflug þangað hefur verið frestað. Fleiri breytingar hafa verið gerðar á vetraráætlun félagsins, meðal annars verður dregið úr flugi til Parísar en flug aukið til New York. Einnig verða felld út einstök flug á nokkrum leiðum.
Þeir farþegar sem áttu bókanir á þeim flugum sem felld hafa verið niður eru látnir vita og samkvæmt reglum um breytingar á áætlun er þeim boðin endurgreiðsla eða önnur ferðatilhögun.
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir í tilkynningu að frá áramótum hafi flugeldsneytið hækkað um 60% og það hafi sexfaldast í verði á nokkrum árum. Bókunarstaða Icelandair sé í raun góð en eldsneytiskostnaðurinn valdi því að fækka verði flugum og auka nýtingu í hverju flugi.