Hrefnubáturinn Njörður KÓ heldur aftur til veiða síðdegis í dag. Fram kemur á heimasíðu Félags hrefnuveiðimanna, að stefnt sé að því að halda út til föstudags og ná nokkrum hrefnum.
Hrefnuveiðikvóti var gefinn út fyrir rúmri viku og veiddist fyrsta hrefnan í kjölfarið. Segir á vef hrefnuveiðimanna, að viðtökur við kjötinu hafi verið góðar.