Keyrt var á umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar rétt fyrir miðnætti í gær. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var um minniháttar umferðaróhapp að ræða, en ökumaður og farþegi í bíl voru fluttir á slysadeild til öryggis. Umferðarljósið og bílinn urðu fyrir talsverði tjóni.