Eftirskjálftar hafa verið eftir jarðskjálftann, sem varð skammt frá Selfossi um klukkan 15:45 í dag. Varað er við því að von geti verið á fleiri eftirskjálftum og er fólk á Selfossi og í Hveragerði og í nærliggjandi byggðum beðið um að halda sig utan dyra.