Eftirskjálftar hafa verið í alla nótt á skjálftasvæðinu í Ölfusi. Snarpasti kippurinn varð klukkan 5:15 í morgun, 3,5 stig á Richter, en hann átti upptök sín um 5 km norður af Selfossi. Í gærkvöldi urðu fjórir kippir á bilinu 3,5-4 stig á Richter.
Skjálftarnir í gærkvöldi urðu til þess að um tugur manna á Selfossi yfirgaf heimili sín og færði sig yfir í fjöldahjálparstöðina í bænum en þar var nánast tómt hús fyrir.
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi var í vinnunni þegar skjálftarnir urðu og fann hann fyrir þeim. „Þetta er í samræmi við spá sérfræðinga sem telja afar ólíklegt að sterkir skjálftar komi á þessu svæði,“ sagði hann. „En auðvitað er ástæða til að hafa alltaf varann á, þótt ekki sé ástæða fyrir fólk til að verða mjög óttaslegið.“
Sagði hann að á meðan ástandið versnaði ekki stæði óbreytt sú ákvörðun almannavarnanefndar að aflétta hættuástandi.
Áfallahjálparteymi Rauða krossins aðstoðuðu fjölmargt fólk í gær á
skjálftasvæðunum vegna áfalls af völdum meginskjálftanna á fimmtudag og
voru sumir einstaklingar í miklu áfalli. Eftirskjálftar gærdagsins voru
allnokkrir og reyndu mikið á taugarnar í fólki. Til dæmis um það varð
einn öflugur eftirskjálfti á miðjum fræðslufundi um áfallahjálp í
grunnskólanum í Hveragerði og flúði helmingur fundargesta út undir bert
loft, jafnvel þótt skólabyggingin hefði verið metin örugg.