Framseldur til Póllands

mbl.is/Július

Karlmaður, sem grunaður er um  mannrán, morð og aðild að skipulögðum glæpasamtökum í Póllandi, var í dag framseldur til Póllands. Dómsmálaráðherra ákvað að verða við framsalsbeiðni pólskra yfirvalda þann í apríl og Hæstiréttur staðfesti þá ákvörðun.

Maðurinn, sem heitir Przemyslaw Plank,  kom við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og eftir athugun alþjóðadeildar ríkislögreglustjórans kom í ljós að hann var eftirlýstur í Póllandi en alþjóðleg eftirlýsing hafði ekki verið gefin út.  

Plank var handtekinn 14. apríl  og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.  Í dag fluttu lögreglufulltrúar alþjóðadeildar ríkislögreglustjórans Plank til Keflavíkurflugvallar og framseldu hann til þriggja pólskra lögreglumanna, sem tóku fangann í sína vörslu og fluttu áleiðis til Póllands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert