Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi á sunnudag að leggja til við umhverfisráðherra að fimm svæði í landi Hafnarfjarðar verði friðlýst.
1. Hvaleyrarlón og fjörur Hvaleyrar verði friðlýstar sem fólkvangur.
2. Hleinar að Langeyrarmölum verði friðlýstar sem fólkvangur.
3. Stekkjarhraun verði friðlýst sem fólkvangur.
4. Kaldárhraun og Gjárnar verði friðlýstar sem náttúruvætti.
5. Litlu-Borgir verði friðlýstar sem náttúruvætti.