„Málið er búið og ég held að það sé ákveðið ánægjuefni í þessu máli, þó að sakborningar séu væntanlega ekki sáttir við niðurstöðuna,“ segir Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari, um niðurstöðu Hæstaréttar í Baugsmálinu.
„Miðað við það til hvers var stofnað á sínum tíma þá verð ég nú að segja eins og er að þetta er heldur rýr uppskera fyrir ákæruvaldið,“ segir Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.