Talið er að bjarndýrið, sem fellt var í Skagafirði á þriðjudag, hafi verið eitt á ferð.
Lögreglan á Sauðárkróki segir að ástæða hafi þótt til að ganga úr skugga um að fleiri bjarndýr gengju ekki laus á svæðinu. Var því óskað liðsinnis Landhelgisgæslu Íslands sem sendi þyrlu til þess að leita svæðið úr lofti.
Með í för voru tveir starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Norðurlands vestra og var niðurstaða þeirrar leitar sú, að líklega hafi dýrið verið eitt á ferð.