Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar í DV í dag þar sem fullyrt er að ráðherrann fái um 1 milljón á ári í greiðslur frá ríkinu með því að skrá lögheimili sitt í Þykkvabæ þótt hann búi þar ekki.
Yfirlýsing ráðherra er eftirfarandi:
„Sú fullyrðing sem sett er fram á forsíðu og innblaði DV í dag um að undirritaður græði á fölsku heimili er algjörlega röng og á ekki við nein rök að styðjast, enda fá alþingismenn engar greiðslur tengdar lögheimili sínu.
Annars vegar fá þingmenn dreifbýliskjördæma greiðslur vegna kostnaðar við ferðir og uppihald í kjördæmi sínu. Þær greiðslur fá allir þingmenn dreifbýliskjördæma, óháð búsetu eða lögheimili.
Hinsvegar geta þingmenn dreifbýliskjördæma fengið greiðslur ef þeir halda tvö heimili á landinu, óháð því hvar lögheimilið er skráð.
Undirritaður hefur aldrei haldið því fram að hann haldi tvö heimili, ekki óskað eftir því að fá greiðslur frá Alþingi vegna þess og aldrei fengið.
Upplýsingar um ofangreint hefði blaðið getað fengið ef leitað hefði verið eftir því.
Fréttin er því röng, og blaðamennskan óvönduð.
Undirritaður fer fram á að DV biðjist afsökunar og leiðrétti rangfærslurnar.
Árni M. Mathiesen"