Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu, að foreldrar tvítugs karlmanns, sem beið bana í umferðarslysi árið 2001, eigi rétt á 2 milljóna króna bótum hvort um sig. Karlmaður, sem olli slysinu, var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi að sýna af sér saknæmt gáleysi. Hann er nú látinn en dóttir hans, sem tókst á hendur ábyrgð á skuldum dánarbúsins, var í dag dæmd, ásamt vátryggingafélagi mannsins, til að greiða bæturnar
Bílslysið varð á gatnamótum Drottningarbrautar og Þórunnarstrætis á Akureyri en maðurinn, sem olli slysinu, beygði bíl sínum í veg fyrir bílinn, sem ungi maðurinn ók. Sá sem slysinu olli og var 72 ára þegar þetta gerðist, játaði sök í refsimáli, sem höfðað var gegn honum og sagði að orsökin hefði verið augnabliks einbeitingarleysi af sinni hálfu.
Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði dóttur mannsins af bótakröfunni en Hæstiréttur segir, að maðurinn teljist hafa gerst sekur um alvarlegt brot á umferðarreglum og verði ástæður slyssins eingöngu raktar til stórfellds gáleysis hans í skilningi skaðabótalaga. Því fellst rétturinn á kröfur foreldranna um bætur.
Einn dómari í Hæstarétti, Gunnlaugur Claessen, skilaði séráliti og vildi sýkna dóttur mannsins og vátryggingafélagið af bótakröfunni.