Vatnsleki í heimahúsi á Hringbraut

mbl.is

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning síðdegis um vatnsleka í heimahúsi við Hringbraut í Reykjavík.  Að sögn slökkviliðsins var um minniháttar kaldavatnsleka að ræða og var slökkviliðið um 20 mínútur á staðnum.  Vatn flæddi úr íbúðinni fram á stigaganginn.  Húsráðandi var ekki heima þegar atvikið átti sér stað og barst tilkynning frá nágrönnum.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert