Talið er að um 15.000 konur hafi tekið þátt í kvennahlaupi Sjóvá ÍSÍ sem fór fram í 19. sinn í dag. Hlaupið fór fram á 90 stöðum út um allt land og á um 20 stöðum erlendis.
Um 3.500 konur hlupu í Garðabænum, 1300 í Mosfellsbæ og 710 á Akureyri. Mikil og góð stemning var víða um land þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman.