Orkuráð úthlutaði í dag 172 milljónum króna til jarðhitaleitar á 29 stöðum á landinu þar sem ekki nýtur hitaveitu. Miðað við kostnaðaráætlanir umsækjenda verður á næstunni starfað við jarðhitaleit fyrir nærri 300 milljónir.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra var viðstaddur afgreiðslu ráðsins á Kirkjubæjarklaustri og sagði við það tækifæri, skv. fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu, að þetta væri hin íslenska leið til þess að vinna sig út úr vanda sem meðal annars steðjar að vegna þorskaflabrests og hækkandi orkuverðs. Fjárfesting í innviðum og nýjum orkugjöfum búi í haginn fyrir framtíðina.
„Úthlutun orkuráðs er að mestu liður í mótvægisaðgerðum stjórnvalda vegna þorskaflaskerðingar. Átakinu er einnig ætlað að stuðla að lækkun húshitunarkostnaðar sem nýtist bæði íbúum staðanna og skattgreiðendum vegna minni niðurgreiðslna, og ennfremur verður jarðhitaleitin væntanlega til þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og nýta betur raforku. Af fénu sem nú er úthlutað, 172 milljónum króna, eru 152 m.kr. veittar sem hluti sérstaks átaks vegna mótvægisaðgerða sem alþingi samþykkti á haustþinginu 2007, en 20 m.kr. er úthlutað sem almennu jarðhitaleitarátaki árið 2008 samkvæmt heimild í lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar," segir í fréttatilkynningunni.
Iðnaðarráðherra fól í vetur Orkuráði báða þætti þessarar úthlutunar. Reglur um styrki í sérstaka mótvægisátakinu eru meðal annars þær að ekki koma til greina aðrir staðir en þeir þar sem verulegur tekjumissir hefur orðið vegna skertra þorskaflaheimilda, styrkur getur numið allt að 75% heildarkostnaðar en er að hámarki 8 milljónir. Styrkirnir eru veittir með fyrirvara um að alþingi samþykki lokafjárveitingu til verkefnisins fyrir næsta ár, 50 m.kr. Reglur um styrki í almenna átakinu eru meðal annars að styrkur getur numið 50% heildarkostnaðar og er að hámarki 5 milljónir. Umsóknir um styrki voru samtals 35, þar af 12 sem töldust almennar og 23 sérstakar mótvægisumsóknir. 29 voru samþykktar, þrjár bíða enn lokaafgreiðslu og sex var hafnað.
Þeir sem nú fá úthlutað í sérstaka mótvægisátakinu eru eftirtaldir:
Árneshreppur: 5,8 milljónir
Borgarfjarðarhreppur (Bf. eystri): 5 milljónir
Breiðdalshreppur: 8 milljónir
Djúpavogshreppur: 8 milljónir
Fjarðabyggð, fyrir Fáskrúðsfjörð: 7,5 milljónir
Fjarðabyggð, fyrir Norðfjörð: 7,5 milljónir
Fjarðabyggð, fyrir Reyðarfjörð: 7,5 milljónir
Fjarðabyggð, fyrir Stöðvarfjörð: 7,5 milljónir
Hornafjörður, fyrir Mýrar: 8 milljónir
Svf. Hornafjörður, fyrir Suðursveit: 8 milljónir
Svf. Hornafjörður, fyrir Öræfi: 8 milljónir
Kaldrananeshreppur: 4 milljónir
Langanesbyggð: 8 milljónir
Magnús Magnússon, fyrir Hveravík í Steingrímsfirði: 8 milljónir
Norðurþing, fyrir Raufarhöfn: 8 milljónir
Orkuveita Staðarsveitar, Snæfellsbæ: 8 milljónir
Snæfellsbær, fyrir Hellissand: 6,7 milljónir
Súðavíkurhreppur: 9,1 milljónir
Tálknafjarðarhreppur: 8 milljónir
Vesturbyggð, fyrir Bíldudal og Patreksfjörð: 8 milljónir
Vopnafjarðarhreppur: 8 milljónir
Að auki fá þessir úthlutað í almenna leitarátakinu:
Arnór Heiðar Ragnarsson,vegna Bjarkarlundarhverfis: 5 milljónir
Félagsbúið Björgum, Þingeyjarsveit 500 þúsund krónur
Jón Benjamínsson, fyrir Fljótsdalshrepp: 2 milljónir
Kjósarhreppur: 1,8 milljónir
Mýrdalshreppur: 2 milljónir
Skaftárhreppur: 500 þúsund kr.
Sveitarsetrið Draflastöðum, Fnjóskadal: 3,5 milljónir
Bent er á að Súðavíkurhreppur fær tvo styrki, annarsvegar úr mótvægisfé 2008, hinsvegar vegna umsóknar frá 2006.
Orkuráð starfar í tengslum við Orkustofnun og er meginhlutverk þess að sjá um rekstur Orkusjóðs, sem veitir áhættulán fyrir jarðhitaverkefnum og styrkir rannsóknir og fræðsluverkefni um endurnýjanlega orku, orkunýtingu og -sparnað.
Iðnaðarráðherra skipar menn í ráðið og sitja þar nú Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.