Lögreglan rannsakar msn-perra: Berar sig á msn

Varað er við barnaperra í tölvupósti sem gengið hefur manna á milli síðustu daga.

Í póstinum segir að maðurinn bæti stelpum á msn-spjallsvæði sitt og beri sig svo fyrir þeim í vefmyndavél. Auk þess hafi hann í frammi kynferðislega tilburði.

Netfang mannsins á msn er xjr1300@hotmail.com og kallar hann sig mit_labrador.

Þær upplýsingar fengust hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að lögreglan hefði málið til rannsóknar.

Í 209. grein almennra hegningarlaga segir að hver sem með lostugu athæfi særir blygðunarsemi manna skuli sæta fangelsi allt að 4 árum eða sektum ef brot er smávægilegt. fifa@24stundir.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert