Ölvaður karlmaður var handtekinn í dag í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hafði verið erfiður í samskiptum við starfsmenn og ferðamenn í flugstöðinni. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum gistir maðurinn fangageymslu þar til af honum rennur áfengisvíman.