Ökumaður var sviptur skírteininu á staðnum eftir að hafa verið tekinn á 134 km hraða á Reykjanesbraut í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Þar sem för ökumannsins var stöðvuð er 60 km hámarkshraði.
Ennfremur voru þrír einstaklingar teknir fyrir fíkniefnamisferli í nótt, segir lögreglan, og einn ökumaður var tekinn ölvaður í Hafnarfirði.