Miðasala á Landsmót gengur vel og er undirbúningur á fullu skriði. Svæðið á Gaddstaðaflötum við Hellu er að taka á sig glæsilega mynd og mikil stemning að myndast í kringum úrtökur þessa dagana um land allt. Örfá stæði eru enn laus í hjólhýsastæði með aðgang að rafmagni á Landsmót hestamanna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsmóti.
Síðasti dagur til að kaupa í þessi stæði er sunnudagurinn 15. júní. Þess ber þó að geta að næg stæði eru fyrir hjólhýsi án aðgengis að rafmagni en ekki eru teknar pantanir fyrir þau stæði sérstaklega líkt og á almenna tjaldstæðinu.