Jarðskjálfti, sem mældist tæplega 3 á Richter, varð á Suðurlandi klukkan 5.28 í morgun. Upptök skjálftans voru 2,4 kílómetra norðnorðaustur af Hveragerði og fannst hann vel í bænum.
Annar skjálfti, um 3,5 á Richter, varð einnig á Suðurlandi á tólfta tímanum í gærkvöld. Upptök hans voru liðlega 7 kílómetra austnorðaustur af Hveragerði.