Björgunarsveitin Víkverji var kölluð út um klukkan 14:30 í gær vegna manns sem fallið hafði við helli við Sólheimajökul og fótbrotnað. Um klukkan 15:00 komu björgunarsveitarmenn að manninum og var hann borinn að sjúkrabíl sem kom á staðinn. Var farið með hann á sjúkrahús í Reykjavík.