Prestastefna hófst með messu í Dómkirkjunni í kvöld klukkan sex. Um 140 prestar og djáknar eru skráðir til þátttöku á prestastefnunni sem stendur yfir í Seljakirkju í Reykjavík fram á fimmtudag.
Aðalefni prestastefnu að þessu sinni er að ræða drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar, meðal annars skírn og fermingu.