Eftirlýstur maður handtekinn hér

Fulltrúar embættisins handtóku í gær eftirlýstan Frakka á kaffihúsi.
Fulltrúar embættisins handtóku í gær eftirlýstan Frakka á kaffihúsi. Mbl/Árni Sæberg

Lögreglufulltrúar alþjóðadeildar ríkislögreglustjórans handtóku franskan karlmann á kaffihúsi í Reykjavík í gær. Maðurinn er eftirlýstur í Schengen upplýsingakerfinu af frönskum yfirvöldum, grunaður um meiri háttar fjárdráttarbrot þar í landi.

Talið er að hann hafi dregið sér sem nemur rúmlega 22 milljónum íslenskra króna. Í dag var maðurinn leiddur fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem fulltrúi ríkislögreglustjórans krafðist gæsluvarðhalds í þrjár vikur, á meðan framsalsbeiðni franskra yfirvalda er afgreidd hjá íslenskum yfirvöldum. Dómari féllst á kröfuna og úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 3. júlí nk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert