Fíkniefni, sem fundust í húsbíl í Norrænu í fyrradag, voru alls 190 kíló af hassi en einnig fundust 1,5 kíló af maríjúna og 1 kíló af kókaíni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sýndi fréttamönnum fíkniefnin nú síðdegis en þau voru flutt til Reykjavíkur í gær. Markaðsvirði er talið nema allt að hálfum milljarði.
Ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fer nú með rannsókn málsins en hollenskur karlmaður á sjötugsaldri, sem handtekinn var vegna málsins, situr í gæsluvarðhaldi til 9. júlí. Hann var fluttur með flugvél frá Egilsstöðum til Reykjavíkur í gærkvöldi og síðan í fangelsið að Litla-Hrauni.
Lögreglan segir, að rannsókn málsins sé á frumstigi. Frekari leit í bifreiðinni sé í höndum lögreglu og tollyfirvalda og óvíst hvenær henni ljúki.