Þungir bensínfætur í Öxnadal

mbl.is/Július

Þrír ökumenn voru stöðvaðir á yfir 150 km hraða í Öxnadal og Hörgárdal í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri. Hún hafði reyndar í nógu að snúast við að hemja ökumenn í bænum og næsta nágrenni, því alls voru 19 teknir fyrir hraðakstur í nótt.

Þeir ökumenn sem hraðast fóru munu hljóta háa sekt og veða sviptir ökuréttindum í þrjá mánuði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert