Alþjóðlegi prjónadagurinn, World Wide Knit in Public day, er í dag 14.júní. Af því tilefni kom áhugafólk um pjrónamennsku saman á nokkrum stöðum á landinu, meðal annars í Hallargarðinum og í Vík í Mýrdal. Veðurguðirnir léku á alls oddi við viðstadda.
Þetta er í fjórða sinn sem prjónadagurinn er haldinn og hefur hann notið sívaxandi vinsælda. Er nú hægt að nálgast viðburði á 781 stað.
Hér má sjá nánari upplýsingar um daginn.