Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur í kvöld eftir að bíll valt nálægt Staðarskála í Hrútafirði. Einn maður hlaut talsverða höfuðáverka en hinir tveir eru minna slasaðir.
Að sögn lögreglunnar á Blöndósi var um framúrakstur að ræða þegar bílstjórinn missti stjórn á bílnum sem valt og lenti utan vegar. Grunur leikur á að bílnum hafi verið ekið á ólöglegum hraða. Þung umferð var norðan heiða í gær en margir voru á leið á hina árlegu Bíladaga á Akureyri.