Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í gærkvöldi hald á að um 800 grömm af hassi og um 200 þúsund í peningum við húsleit í Breiðholti.
25 ára gamall karlmaður var handtekinn og verður yfirheyrður í dag vegna málsins.
Annar karlmaður 23 ára var einnig handtekinn en sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá tollgæslunni.