Ellefu ára gömul fötluð stúlka sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað að frá hádegi er fundin. Var hún heil á húfi og er nú komin heim.
Lögreglan notaði meðal annars þyrlu við leitina að stúlkunni, en leitað var í hrauni, skammt frá heimili stúlkunnar. Stóð til að sporhundar tækju þátt í leitinni.