Eldur kom upp á Finnbogastöðum í Trékyllisvík

mbl.is

Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Finnbogastöðum í Trékyllisvík á Ströndum í morgun.  Að sögn lögreglunnar á Ísafirði barst þeim tilkynning um eldinn klukkan 11.15 og var einn maður inni í húsinu.  Hann komst út úr húsinu og ekkert amar að honum, að sögn lögreglu. 

Slökkvilið og lögregla frá Hólmavík og Drangsnesi eru nú á leið til Trékyllisvíkur, en frekari upplýsingar um brunann liggja ekki fyrir að svo stöddu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert